Breytingar í framkvæmdarstjórn CRI, Gauti Reynisson tekur við af Björk Kristjánsdóttur
English below
Björk Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs hjá Carbon Recycling International (CRI), hefur ákveðið að láta af störfum eftir fimm ár af kraftmikilli og farsælli vegferð innan fyrirtækisins.
Hún lætur af daglegum störfum í júní en tekur þá sæti í ráðgjafaráði CRI. Þaðan mun Björk styðja framkvæmdastjórn og tryggja góða yfirfærslu verkefna.
Björk hóf störf sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs árið 2020 og gegndi síðar lykilhlutverki sem tímabundinn forstjóri félagisns á árunum 2022-2024. Á því tímabili leiddi hún fyrirtækið í gegnum umfangsmikla fjármögnun sem lagði grunn að áframhaldandi vexti CRI, fjármögnun sem markaði tímamót í sögu fyrirtækisins.
Í gegnum sinn feril hjá CRI hefur Björk verið burðarás í þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað síðustu ár. Framlag hennar hefur verið veigamikið og víðtækt, og ekki bundið við einn flöt. Hún skilur eftir sig sterkan grunn og samhent teymi sem er vel í stakk búið fyrir áframhaldandi vöxt félagsins.
Við hjá CRI erum henni innilega þakklát fyrir hennar mikilvæga framlag til fyrirtækisins og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.
Gauti Reynisson verður framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Við erum stolt af því að kynna Gauta Reynisson, sem tekur við stöðu Framkvæmdastjóra Fjármálasviðs hjá CRI.
Gauti kemur til liðs við okkur með víðtæka þekkingu á fjármálum og rekstri, bæði úr íslensku og alþjóðlegu viðskiptalífi. Hann hefur meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri hjá City Leisure Group í Sviss, þar sem hann leiddi þróun fjárfestinga í nokkrum stórborgum Evrópu. Auk þess gegndi hann lykilhlutverkum hjá Heimavellir/Heimstaden, bæði sem framkvæmdastjóri og fjármálastjóri á tímum mikilla umbreytinga og vaxtar.
Með komu Gauta styrkjum við stöðu CRI enn frekar til að byggja upp, þróast og vaxa á alþjóðamarkaði. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn og hlökkum til samstarfsins á þessum spennandi tímamótum.
Changes in CRI’s Executive Management – Gauti Reynisson Succeeds Björk Kristjánsdóttir
Björk Kristjánsdóttir, Chief Operating and Financial Officer at Carbon Recycling International (CRI), has decided to step down after five years of dynamic and successful leadership within the company.
She will leave her daily role in June but will take on a position on CRI’s Advisory Board, from where she will continue to support the executive team and ensure a smooth handover of responsibilities.
Björk began her journey with CRI as CFO in 2020 and later played a key role as interim CEO from 2022 to 2024. During that time, she led the company through a major funding round that laid the foundation for CRI’s continued growth, a milestone moment in the company’s history.
Throughout her tenure at CRI, Björk has been a cornerstone of the company’s development. Her contributions have been both substantial and wide-reaching, touching on many aspects of CRI’s operations. She leaves behind a strong foundation and a unified team well equipped to drive the company forward.
We at CRI are sincerely grateful for her significant contributions to the company and look forward to continued collaboration.
Gauti Reynisson Appointed Chief Financial Officer
We are proud to announce that Gauti Reynisson will take over as Chief Financial Officer at CRI.
Gauti brings extensive expertise in finance and operations from both Icelandic and international business environments. He has served as Managing Director at City Leisure Group in Switzerland, where he led investment development in several major European cities. He also held key positions at Heimavellir/Heimstaden, including Managing Director and CFO during a period of significant transformation and growth.
With Gauti’s arrival, we further strengthen CRI’s position to grow, evolve, and expand in the international market. We warmly welcome him and look forward to working together during this exciting new chapter.